29. febrúar 2008 klukkan 23:38
Jæja já.. núna er þetta að fara skella á..
Þrítugsafmælið er framundan og skipurlagning hafinn..
kannski seint.. veit ekki..
Var ekki alveg viss um að ég vildi gera þetta.. en ætli maður verði nú ekki :)
Núna er þetta bara spurning um stað og stund..
Dagsetning er kominn... 22.mars 2008 :)
Þér er boðið.. eða ég held það allavega :)
Núna er bara málið hvað skal gera þetta kvöld..
ég er búinn að skoða nokkrar myndir.. allt virðist þetta vera hálf daufar veislur.. eða bara fljótandi í áfengi.. þá virðist flest skemmtilegt..
þannig ég er í smá klemmu.. ég vill dansa og skemmta mér vel.. en ekki drekka..
Auðvitað verð ég að bjóða upp á smá veigar og er alveg meira en til í það..
en það vantar umgjörðina.. . þema.. leiki.. tónlist. og annað skemmtilegt..
hljómar kannski skrítið veit ekki..
En ég er viss um að þetta verður mikið fjör þegar það smellur allt saman.
Anyways.. ef þú ert nýr.. eða gamall félagi.. endilega sendu mér línu.. þannig ég geti örugglega send þér boð í þetta skemmikvöld okkar :)
Þetta er auðvitað tilvalinn tími til að rifja upp gamla tíma og heilsa upp á gamla vini :)
En hvað annað er búið að gerast..
Jú.. ég var í þýskalandi .. í 4 daga..
á Euroshop sýningunni..
Mjög gaman að fá að sjá þetta.. rölta um miðbæ Dusseldorf snæða steikur og Kebab
Reyndar á öllu þessu röltu tókst mér að verða nokkuð veikur..
byrjaði örlítið áður en ég fór út.. og röltið í of lítið af fötum var ekki að hjálpa..
ca. 8-9 tímar á dag á stöðugu rölti.. inni og úti.
En þetta lagast allt.. kvef,hósti og hálsbólga hafa sjaldan drepið neinn..
Jæja.. best að halda áfram með þetta..